Sprog/Språk/Tungumál/Kieli
    Svíþjóð
    Hér geturðu fundið upplýsingar við hæfi ef þú ætlar að flytja, starfa eða stunda nám í Svíþjóð

    Þjóðskrá

    Þegar fólk flyst til Svíþjóðar frá öðrum Norðurlöndum, gildir norræni þjóðskráningarsamingurinn en að honum standa Danir, Finnar, Íslendingar, Norðmenn og Svíar. Samkvæmt honum getur fólk aðeins verið skráð í einu Norðurlandanna í senn. Reglur í aðflutningslandinu segja til um hvar fólk eigi að skrá sig.  

    Fólk frá hinum Norðurlöndunum getur dvalið í Svíþjóð í allt að heilt ár án þess að skrá sig inn í landið. Ef það hins vegar hyggst búa þar í heilt ár eða lengur þarf að tilkynna flutningana bæði í brottflutningslandinu og hjá Skatteverket (Skattstofu) í Svíþjóð. Síðan tilkynna sænsk skattayfirvöld skráningaryfirvöldum í brottflutningslandinu þegar fólk sé komið á þjóðskrá í Svíþjóð.


    Skráning

    Fólk þarf að mæta í eigin persónu hjá Skatteverket til þess að skrá sig í Svíþjóð. Ef þörf er á aðstoð túlks þarf að biðja um það fyrirfram. Fólk þarf að hafa með sér vegabréf og önnur skjöl sem staðfesta hjúskaparstétt þess og fæðingarvottorð barna sem flytja með.  


    Kennitala

    Allir sem skráðir eru í sænska þjóðskrá fá kennitölu sem á sænsku kallast personnummer. Þegar fólk hefur einu sinni fengið sænska kennitölu fylgir sú tala þeim allt lífið, þótt það flytji síðar úr landi. 


    Samræmingartala (samordningsnummer)

    Ef fólk ætlar að dvelja í Svíþjóð skemur en í eitt ár og hefur því ekki skráð sig inn í landið, getur það fengið samræmingartölu. Samræmingartöluna nota yfirvöld og aðrir aðilar til að bera kennsl á fólk þótt það standi ekki í þjóðskrá. Skatteverket úthlutar fólki samræmingartölu þegar það skráir sig hjá skattinum. Ef fólk ákveður síðar að skrá sig í sænska þjóðskrá fær það kennitölu í stað samræmingartölunnar.  


    Vegabréfsáritun og dvalarleyfi

    Ríkisborgarar frá flestum öðrum ríkjum en ESB-ríkjunum þurfa vegabréfsáritun til þess að ferðast til Svíþjóðar og annarra ríkja á Schengen-svæðinu. Þetta er samkomulag sem Svíar og aðrar ESB-þjóðir hafa gert með sér. Þess vegna er vegabréfsáritunar krafist þegar fólk hyggst ferðast eða dvelja í styttri tíma í Svíþjóð og öðrum Schengen-ríkjum, til dæmis vegna heimsókna til vina og ættingja, ferðalaga og viðskiptaerinda, þátttöku á ráðstefnum eða viðkomu í landinu (transit). Vegabréfsáritun gildir iðulega í þrjá mánuði. Fólk sem hyggst setjast að í Svíþjóð, til dæmis vegna þess að aðstandendur þeirra búa þar fyrir, þarf að sækja um og fá dvalarleyfi áður en það kemur til landsins. Nánari upplýsingar um hvernig sótt er um er að finna á vef sænsku Innflytjendastofunnar, Migrationsverket.


    Fannstu ekki það sem þú leitaðir að?
    Síðast uppfært 18.06.2010


    Útgefandi:
    Ved Stranden 18 1061 København K
    Sími:
    +45 33 96 02 00
    Netfang